|
Topphestar Horse-rentals, Horse trips, Riding school and Horse shows ! |
|
01.11.2011 21:47Sumarið 20121. Svíja túr 2012 Koma til Íslands 24. júní ferð byrjar 25. júní Dagur. 1 Skarðarétt- Engjadalur. Riðið frá Skarðarétt upp heiðardal í Dalsá, áð í smá stund. Frá Dalsá er riðið yfir Kolugafjall um Reiðskarð komið inn á Þverárfjall og riðið sem leið liggur í Engjalæk, þar er áð , skipt um hross og drukkið nesti. Engjadalur- Neðri Mýrar. Lagt af stað frá Engjadal áleiðis að Þverá, riðið um hlaðið á Þverá og svo áleiðis niður eyrarnar í Skrapatungurétt. Hross gista að Neðri Mýrum en mannskapur í réttarhúsinu við Skrapatunguréttina. Dagur 2. Neðri
Mýrar- Blönduós. Riðað af stað niður Laxárdalsafleggjarann niður á veg 74 yfir
hann og á neðri byggðar veg, honum fylgt að Blönduósi Farið í gegnum/framhjá
Blönduósi yfir ána/brúna og í hesthúsahverfið á Blönduósi þar er áð, skipt um
reiðskjóta og etið og drukkið nesti. Blönduós-
Þingeyrar. Riðið af stað frá hesthúsahverfi Blönduóss til suðurs, beigt svo til
vesturs og komið inn á gamla gróna reiðslóð, henni fylgt að þjóðvegi 1 við
afleggjarann að Húnsstöðum, þar er farið yfir veginn og niður afleggjarann í
gegn hjá Húnstöðum, niður undir sjó ,og riðið sem leið liggur að Húnavatn. Farið YFIR vatnið ca 400 metra reið, dagurinn
endar svo á mjúkum sandgötum í Þingeyrar. Hross gista á Þingeyrum. Dagur 3. Þingeyrar-
Þorfinnsstaðir. Lagt af stað frá Þingeyrum á mjúkum sandgötum og áleiðis áÞingeyrarsandinn sem er rúmir 7 km af svörtum stinnum sand. Mikið frelsi fyrir
hross og menn, við lok Þingeyrarsands er komið að Bjargós riðið yfir hann á
vaði, við tekuróbyggðaleið með miklu útsýni góðum götum og ósnortinni náttúru, komið að vegmótum beigt er til vesturs
og riðið að Þorfinnsstöðum þar er áð, skipt um hesta og skóflað í sig nesti. Þorfinnsstaðir-Harastaðir.
Eftir að búið er að gera vel við sig í mat og drykk er lagt í hann frá
Þorfinnsstöðum suður eftir góðum malarvegi fram hjá Þverárrétt í Harastaði. Dagur 4. Harastaðir - Katardalur. Riðið í Þverárrétt, upp í gegnum um hana upp að gili ofan við hana uppúr gilinu og yfir fjallið í Katardalinn, riðið niður Katardalinn að bænum Katardal, þar er skipt um reiðskjóta og gúffað í sig kræsingum. Katardalur-
Krossanes. Eftir át og hestaskipti er haldið áfram niður Katardalinn riðið upp
á ásinn þegar blotnar um of niðri í dalnum, komið niður að vegi vestarlega á
Vatnssnesi, riðið fyrir endann á Vatnsnesinu áleiðis í Krossanes. Dagur 5. Krossanes-
Ægissíða. Lagt af stað frá Krossanesi eftir góðum kindaslóðum riðið niður að
sjó og meðfram sjónum að Valdalæk þar er komið upp á veginn aftur góður
malarvegur veginum fylgt að Ægissíðu þar sem stoppað er, skipt um hesta og
nartað í nesti. Ægissíða-
Harastaðir.veginum fylgt áfram suður Vatnssnesið áleiðis í Harastaði góður
mjúkur malarvegur með prýðis útsýni. Dagur 6. Harastaðir-
Stóra Borg. Áfram haldið til suðurs frá Harastöðum niður að Breiðabólsstað, þar
er farið til austurs niður að Vesturhópsvatni riðið eftir fjörunni við vatnið
að Bjarghúsum þar er komið inn á gamlan
malarveg mjúkan og góðan, riðið í norður frá Bjarghúsum áleiðis að Borgarvirki
sögufrægum stað , þar er áð Borgarvirkið skoðað og lagt svo í hann aftur, riðið
afram að Stóru Borg þar er áð ,skipt um reiðskjóta og rifið í sig nesti. Stóra Borg-Harastaðir. Góður vegur, riðað að Þorfinnsstöðum, fram hjá Þverárrétt og í Harastaði, góður vegur sem býður upp á hraða og gleði fallegt útsýni yfir Vesturhópsvatnið. Góður hringur til að enda túrinn :) Written by Inga Dóra 19.05.2011 21:29
Koma til Íslands 16. Júní /Arrival to Iceland 16th of June 17. júníSauðárkrókur - Brimnes English: Sauðárkrókur to Brimnes à Left from Sauðárkrókur overBorgarsand and to Brimnes. Slept over in Fjall and a swimming trip to the newpool in Hofsós.
English: Brimnesto Fjall in Kolbeinsvalley àGonethrough Brimnesskóga and Kolkuós. Horse rested y Sleitustaðir and from there upKolbeinsvalley and the day ends in Fjall. Slept over in Fjall and a swimmingtrip to Hólar in Hjaltadalur and if there is interest the group can have afield trip to the historic place Hólar.
English: Fjall toLaufskálarétt à Ridden acircle in the beautiful valley, Hjaltadalur. Starting from Fjall, ridden pastHólar and the horses rested in Reykir. The day ends in Laufskálarétt. 20.júní Laufskálarétt - Frostastaðir English:Laufskálarétt to Frostastaðir à The daystarts from Laufskálarétt and the group rides to Rósurétt, where the horses arerested. The day ends in Frostastaðir. Slept over in Tjarnabær close toSauðárkrókur and a relaxing swimming trip to the pool in Sauðárkrókur.
English:Frostastaðir to Grófagilsrétt à Gone fromFrostastaðir to Blönduhlíð in Grund, where the horses are rested and thenridden through varmahlíð. The final stop is then in Grófagilsrétt. Slept overin Tjarnabær again and a swimming trip to Varmahlíð.
English:Grófagilsrétt to Sauðárkrókur à The last day starts off in Gráfagilsrétt and the horses rested in Staðarrétt. The endsin Sauðárkrókur where we will also have the last swimming trip. Slept over inTjarnabær.
Today's page views: 0 Today's unique visitors: 0 Yesterday's page views: 23 Yesterday's unique visitors: 6 Total page views: 10623 Total unique visitors: 3580 Updated numbers: 17.5.2012 01:42:06 |
Archive
Topphestar ehf Cell phone: 868-1776Email: topphestar@live.comAddress: Sæmundargata 8Location: SauðárkrókurAlternative website: http://www.facebook.com/profile.php?id=100002108462754Links |